New Nordic eplaedik í töfluformi 30 stk.

Bragðlaust eplaedik í töfluformi. Eplaedik hefur lengi verið þekkt sem öflug hjálp við ýmsum heilsufarskvillum.
Góðir kostir eplaediks hafa ekki leynt sér en talið er að eplaedik geti haft jákvæð áhrif á hina ýmsu þætti tengda líkamsstarfsemi okkar.

Vörunúmer: 10148132
+
2.340 kr
Vörulýsing

Mörgum líkar ekki við bragðið af eplaedikinu og er því tilvalið að taka það inn í töfluformi. Apple Cider töflurnar eru kærkomnar fyrir marga en þær eru afar öflugar og innihalda auk 1000 mg af eplaediksdufti, ásamt öðrum jurtaefnum. Sýran í eplaedikinu getur enn fremur haft áhrif á viðkvæmar tennur en með því að taka það inn í töfluformi er sú áhætta ekki til staðar.


Apple Cider inniheldur ætiþistil og túnfífil sem þekkt eru fyrir heilsueflandi eiginleika sína og króm sem stuðlar að viðhaldi eðlilegs glúkósamagns í blóðinu og slær þannig á sykurlöngun. Einnig er kólín í blöndunni sem stuðlar að eðlilegum fituefnaskiptum sem og viðhaldi eðlilegrar starfsemi lifrar.

Hver tafla inniheldur 1000 mg af eplaediki, 70 mg af ætiþisli, 70 mg af túnfífli, kólín og 125 mcg af króm.

Ábyrgðaraðili: Artasan

Notkun

1 tafla á dag með mat eða vatnsglasi. 

Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um.  

Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma.

Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu. Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til. ​

Innihald

1000 mg af eplaediki, 70 mg af ætiþisli, 70 mg af túnfífli, kólín og 125 mcg af króm.

Apple cider vinegar powder, Cynara scolymus L. (globe artichoke), Taraxacum officinalis Web. (dandelion), filling agent (di-calcium phosphate), coating agents (magnesium stearate, hydroxypropyl methylcellulose), disintegrator (crosslinked sodium carboxymethyl cellulose), and anticaking agent (silicon dioxide). 

Store in a cool, dry place, out of direct sunlight.

Tengdar vörur